Interim report
Page 1
Samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar 1. janúar - 30. júní 2026
Page 2
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 2 Efnisyfirlit Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra ................................................................................................................. 3 Könnunaráritun óháðs endurskoðanda ................................................................................................................... 4 Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 1. janúar – 30. júní 2026 ................................................................. 5 Efnahagsreikningur 30. júní 2026 ............................................................................................................................ 6 Eiginfjáryfirlit 1. janúar – 30. júní 2026 .................................................................................................................... 7 Sjóðstreymisyfirlit 1. janúar – 30. júní 2026 ............................................................................................................. 8 Skýringar ................................................................................................................................................................. 9 Ársfjórðungayfirlit .................................................................................................................................................. 14
Page 3
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 3 Skýrsla og yfirlýsing stjórnar og forstjóra Starfsemi Heima hf. er fólgin í eignarhaldi, uppbyggingu, útleigu og rekstri á fasteignum undir atvinnustarfsemi, s.s. verslun og þjónustu, iðnað, skrifstofu, íþrótta - og afþreyingastarfsemi. Enn fremur sala á þjónustu tengdri útleigu og fasteignarekstri s.s. ræstingar, húsvarsla, viðhald og almenn fasteignaumsjón. Árshlutareikningur Heima hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 202 6 er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34 um árshlutareikninga eins og hann hefur verið staðfestur af Evró pusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samandreginn samstæðureikning Heima hf. og dótturfélaga. Rekstur og fjárhagsstaða Rekstrartekjur samstæðu Heima hf. námu 8.745 m.kr. á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2026 samanborið við 7.578 m.kr. fyrir sama tímabil á árinu 202 5. Rekstrarhagnaður samstæðunnar fyrir matsbreytingu á tímabilinu var 5. 830 m.kr. samanborið við 5.088 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður. Hagnaður af rekstri samstæðunnar á tímabilinu nam 4.568 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi en var 1.114 m.kr. fyrir sama tímabil 2025. Matsbreyting fjárfestingareigna nam 7.669 m.kr. á tímabilinu samanborið við 1.414 m.kr. á sama tímabili 20 25. Aukin matsbreyting milli ára skýrist af hækkun verðlags á árinu 2026 en jafnframt hækkaði ávöxtunarkrafa á sama tímabili 2025 sem leiddi til minni matsbreytingar þess tímabils. Heildareignir samstæðunnar námu 256.263 m.kr. í lok tímabilsins samkvæmt efnahagsreikningi. Eigið fé félagsins var 82.284 m.kr. að meðtöldu hlutafé að fjárhæð 1.939 m.kr. Eiginfjárhlutfall félagsins var 32% í lok júní 2026. Horfur Hækkun vaxta, verðlags og verðbólguhorfur hafa bein áhrif á rekstrartekjur og gjöld félagsins til hækkunar. Það er mat stjórnar og stjórnenda að samsetning leigutaka dragi verulega úr áhættu á auknum vanskilum þrátt fyrir hækkun á leigu til viðskiptavina félagsins og hafa undanfarin misseri sýnt þa ð. Leigutekjur félagsins eru að langmestum hluta verðtryggðar eða um 94%. Eftirspurn eftir leiguhúsnæði hefur haldist stöðug og leitast félagið við að eignasafnið standi saman af eftirsóttum gæða eignum sem eftirspurn er eftir til framtíðar. Stærsti einstak i kostnaðarliður félagsins að fjármagnsgjöldum undanskildum eru fasteignagjöld og nemur hækkun fasteignamats á árinu 2026 um 4% frá fyrra ári. Yfirlýsing stjórnar og forstjóra Samkvæmt bestu vitneskju stjórnar og forstjóra er samandreginn árshlutareikningur samstæðunnar í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal IAS 34 um árshlutareikninga eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um á rsreikninga nr. 3/2006. Er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af eignum, skuldum og fjárhagsstöðu samstæðunnar 30. júní 202 6 og rekstrarafkomu hennar sem og breytingu á handbæru fé á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2026. Jafnframt er það álit stjórnar og forstjóra að árshlutareikningurinn og skýrsla stjórnar og forstjóra geymi glöggt yfirlit um þróun og árangur í rekstri samstæðunnar, stöðu hennar og lýsi helstu áhættuþáttum og óvissu sem samstæðan býr við. Stjórn og forstjóri Heima hf. hafa í dag rætt um árshlutareikning samstæðunnar fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026 og staðfest hann með undirritun sinni. Kópavogur, 27. ágúst 2026. Í stjórn félagsins: Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður Birgir Már Ragnarsson Guðrún Tinna Ólafsdóttir Heiðrún Emilía Jónsdóttir Steingrímur Halldór Pétursson Forstjóri: Halldór Benjamín Þorbergsson
Page 4
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 4 Könnunaráritun óháðs endurskoðanda Til hluthafa og stjórnar Heima hf. Við höfum kannað meðfylgjandi samandreginn samstæðuárshlutareikning Heima hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2026. Samandregni samstæðuárshlutareikningurinn hefur að geyma skýrslu stjórnar, rekstrarreikning og yfirlit um heildarafkomu, efnahagsreikning, eiginfjáryfirlit, sjóðstreymisyfirlit og skýringar. Ábyrgð stjórnar og forstjóra á samandregna samstæðuárshlutareikningnum Stjórn og forstjóri eru ábyrgir fyrir gerð og framsetningu samandregna samstæðuárshlutareikningsins í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga. Umfang könnunar Könnun okkar var unnin í samræmi við alþjóðlegan staðal ISRE 2410, sem fjallar um könnun óháðs endurskoðanda á árshlutareikningum. Slík könnun felur í sér fyrirspurnir, einkum til starfsmanna sem eru ábyrgir fyrir fjármálum og reikningsskilum félagsins ásamt greiningum á hinum ýmsu liðum reikningsskilanna og öðrum könnunaraðgerðum. Könnun felur ekki í sér jafn viðtækar aðgerðir og endurskoðun sem unnin er í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla og er því ekki víst að við fáum vitneskju um öll mikilvæg atriði sem gætu komið í ljós við endurskoðun. Þar af leiðandi látum við álit um endurskoðun ekki í ljós. Ályktun Við könnun okkar kom ekkert fram sem bendir til annars en að samandregni samstæðuárshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins á tímabilinu, efnahag þess 30. júní 202 6, breytingu á eigin fé á tímabilinu og breytingu á handbæru fé á tímabilinu, í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla eins og þeir hafa verið samþykktir af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga. Kópavogur, 27. ágúst 2026. Deloitte ehf. Ingvi Björn Bergmann endurskoðandi
Page 5
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 5 Fjárhæðir í milljónum króna Rekstrarreikningur og yfirlit um heildarafkomu 1. janúar – 30. júní 2026 Skýring 2026 2025 1.1.-30.6. 1.1.-30.6. Leigutekjur 8.325 7.169 Tekjur vegna rekstrar í fasteignum 420 409 Rekstrartekjur 5 8.745 7.578 Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna ( 1.780) ( 1.464) Rekstur í fasteignum ( 655) ( 599) Stjórnunarkostnaður ( 480) ( 427) Rekstrarkostnaður 6 ( 2.915) ( 2.490) Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 5.830 5.088 Matsbreyting fjárfestingareigna 8 7.669 1.414 Afskriftir eigna til eigin nota ( 35) ( 32) Rekstrarhagnaður 13.463 6.471 Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld): Fjármunatekjur 78 144 Fjármagnsgjöld ( 7.862) ( 5.236) Hrein fjármagnsgjöld 7 ( 7.784) ( 5.092) Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga 10 31 13 Hagnaður fyrir tekjuskatt 5.710 1.393 Tekjuskattur ( 1.142) ( 279) Hagnaður og heildarafkoma tímabilsins 4.568 1.114 Hagnaður á hlut 2,34 0,62 Þynntur hagnaður á hlut 2,33 0,62 Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Page 6
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 6 Fjárhæðir í milljónum króna Efnahagsreikningur 30. júní 2026 Skýring 30.6.2026 31.12.2025 Eignir Fjárfestingareignir 8 242.568 228.528 Eignir til eigin nota 727 727 Leigudreifing 243 266 Skuldabréfaeign og langtímakröfur 70 43 Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum 10 6.093 6.093 Fastafjármunir 249.701 235.657 Viðskiptakröfur 749 832 Aðrar skammtímakröfur 964 924 Leigudreifing 63 84 Handbært fé 4.786 2.908 Veltufjármunir 6.563 4.748 Eignir samtals 256.263 240.405 Hlutafé 1.939 1.967 Yfirverðsreikningur hlutafjár 20.467 21.439 Bundið eigið fé 35.814 37.196 Óráðstafað eigið fé 24.064 18.882 Eigið fé 82.284 79.483 Vaxtaberandi skuldir 9 134.153 129.890 Leiguskuld 5.703 5.530 Tekjuskattsskuldbinding 19.616 18.474 Langtímaskuldir 159.471 153.893 Vaxtaberandi skuldir 9 11.786 4.578 Næsta árs afborgun leiguskuldar 0 48 Viðskiptaskuldir og aðrar skammtímaskuldir 2.721 2.403 Skammtímaskuldir 14.508 7.028 Skuldir samtals 173.978 160.922 Eigið fé og skuldir samtals 256.263 240.405 Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Page 7
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 7 Fjárhæðir í milljónum króna Eiginfjáryfirlit 1. janúar – 30. júní 2026 Yfirverðs- Óráð- reikningur Bundið stafað Hlutafé hlutafjár eigið fé eigið fé Samtals 1. janúar til 30. júní 2025 Eigið fé 1.janúar 2025 1.764 14.206 36.952 11.600 64.521 Hagnaður og heildarafkoma tímabilsins 1.114 1.114 Fært á bundinn hlutdeildarreikning 2.342 ( 2.342) 0 Fært á lögbundinn varasjóð ( 61) 61 0 Hlutafjáraukning 258 9.229 9.487 Kaup á eigin bréfum ( 14) ( 485) ( 499) Arðgreiðsla ( 750) ( 750) Arðgreiðsla móttekin frá dótturfélögum ( 10.000) 10.000 0 Kaupréttarsamningar 15 15 Eigið fé 30. júní 2025 2.008 22.888 29.355 19.637 73.888 1. janúar til 30. júní 2026 Eigið fé 1.janúar 2026 1.967 21.439 37.196 18.882 79.483 Hagnaður og heildarafkoma tímabilsins 4.568 4.568 Fært á bundinn hlutdeildarreikning 5.918 ( 5.918) 0 Kaup á eigin bréfum ( 28) ( 972) ( 1.000) Arðgreiðsla ( 782) ( 782) Arðgreiðsla móttekin frá dótturfélögum ( 7.300) 7.300 0 Kaupréttarsamningar 15 15 Eigið fé 30. júní 2026 1.939 20.467 35.814 24.064 82.284 Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Page 8
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 8 Fjárhæðir í milljónum króna Sjóðstreymisyfirlit 1. janúar – 30. júní 2026 Skýring 2026 2025 Rekstrarhreyfingar 1.1.-30.6. 1.1.-30.6. Hagnaður og heildarafkoma tímabilsins 4.568 1.114 Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi: Matsbreyting fjárfestingareigna 8 ( 7.669) ( 1.414) Afskriftir eigna til eigin nota 35 32 Hrein fjármagnsgjöld 7 7.784 5.092 Afkoma hlutdeildarfélaga 10 ( 31) ( 13) Tekjuskattur 1.142 279 5.830 5.088 Breyting á rekstrartengdum eignum 59 ( 289) Breyting á rekstrartengdum skuldum 352 ( 218) 6.241 4.581 Innheimtar vaxtatekjur 7 78 144 Greidd vaxtagjöld 7 ( 2.796) ( 2.381) Greiddir vextir af leiguskuld ( 163) ( 95) Handbært fé frá rekstri 3.361 2.250 Fjárfestingarhreyfingar Fjárfesting í fjárfestingareignum 8 ( 6.010) ( 5.361) Söluverð fjárfestingareigna 8 0 26 Móttekinn arður frá hlutdeildarfélagi 10 31 308 Fjárfesting í eignum til eigin nota (nettó breyting) ( 35) ( 18) Yfirtekið handbært fé við kaup á dótturfélögum 0 64 Fjárfestingarhreyfingar ( 6.014) ( 4.981) Fjármögnunarhreyfingar Kaup á eigin bréfum ( 1.000) ( 499) Greiddur arður ( 782) ( 750) Tekin ný lán 9 17.139 8.277 Afborganir og uppgreiðslur vaxtaberandi langtímaskulda 9 ( 10.781) ( 4.579) Afborganir leiguskulda ( 46) ( 104) Fjármögnunarhreyfingar 4.531 2.346 Breyting á handbæru fé 1.878 ( 386) Handbært fé í ársbyrjun 2.908 3.780 Handbært fé í lok tímabils 4.786 3.395 Fjárfestingar- og fjármögnunarhreyfingar án greiðsluáhrifa Fjárfesting í fjárfestingareignum 8 0 ( 17.918) Útgefið hlutafé 0 9.487 Yfirteknar skuldir 0 8.431 Skýringar á bls. 9-13 eru óaðskiljanlegur hluti árshlutareikningsins.
Page 9
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 9 Fjárhæðir í milljónum króna Skýringar 1. Almennar upplýsingar Heimar hf., („félagið“) kt. 630109 -1080, er með aðsetur að Hagasmára 1 í Kópavogi. Samstæðuárshlutareikningur félagsins fyrir tímabilið 1. janúar – 30. júní 2026 hefur að geyma árshlutareikning félagsins og dótturfélaga þess, sem vísað er til í heild sem „samstæðunnar“ og til einstakra félaga sem „samstæðufélaga“. Félagið er almenningshlutafélag og skráð í Kauphöll Íslands (Nasdaq Iceland hf.). 2. Grundvöllur reikningsskilanna Árshlutareikningur samstæðunnar er gerður í samræmi við alþjóðlegan reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið staðfestur af Evrópusambandinu og viðbótarkröfur í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Samandreginn árshlutareikn ingur samstæðunnar inniheldur ekki allar þær upplýsingar sem krafist er í fullbúnum ársreikningi og ætti að lesa í samhengi við ársreikning samstæðunnar fyrir árið 2025. Stjórn félagsins staðfesti árshlutareikninginn með undirritun sinni þann 27. ágúst 2026. 3. Mikilvægar reikningsskilaaðferðir Við gerð árshlutareikningsins er beitt sömu reikningsskilaaðferðum og beitt var við gerð ársreiknings samstæðunnar fyrir árið 2025. Hægt er að nálgast ársreikninginn hjá félaginu eða á vef þess www.heimar.is. Árshlutareikningurinn er gerður í íslenskum krónum, sem er starfrækslugjaldmiðill félagsins, og eru fjárhæðir birtar í milljónum króna . Hann byggir á upphaflegu kostnaðarverði, að því undanskildu að fjárfestingareignir samstæðunnar eru metnar á gangvirði. Mismunur á gangvirði og bókfærðu verði fjáreigna og fjárskulda er óverulegur. 4. Mat stjórnenda í reikningsskilum Gerð árshlutareiknings í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla krefst þess að stjórnendur taki ákvarðanir, meti og gefi sér forsendur sem hafa áhrif á beitingu reikningsskilaaðferða og birtar fjárhæðir eigna, skulda, tekna og gjalda. Endanlegar niðurstöður kunna að verða frábrugðnar þessu mati. Upplýsingar um mikilvægar ákvarðanir þar sem reikningsskilaaðferðir hafa mest áhrif á skráðar fjárhæðir eigna er að finna í skýringu 8 - mat á fjárfestingareignum. 5. Rekstrartekjur Rekstrartekjur greinast þannig: 2026 2025 1.1.-30.6. 1.1.-30.6. Leigutekjur af leigusamningum 8.367 7.213 Dreifðar leigutekjur ( 43) ( 44) Leigutekjur samtals 8.325 7.169 Tekjur vegna rekstrar í fasteignum 420 409 Rekstrartekjur samtals 8.745 7.578
Page 10
Skýringar Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 10 Fjárhæðir í milljónum króna 6. Rekstrarkostnaður Rekstrarkostnaður greinist þannig: 2026 2025 1.1.-30.6. 1.1.-30.6. Fasteignagjöld, vatns- og fráveitugjöld 1.044 939 Tryggingar 149 130 Viðhald og endurbætur 239 220 Orkukostnaður og sorphirða 108 94 Afskriftir og niðurfærsla krafna 59 40 Laun og launatengd gjöld 905 769 Eignfærð laun ( 163) ( 162) Annar rekstrarkostnaður 574 461 Rekstrarkostnaður samtals 2.915 2.490 7. Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld greinast þannig: 2026 2025 1.1.-30.6 1.1.-30.6 Vaxtatekjur 78 144 Fjármunatekjur samtals 78 144 Vaxtagjöld ( 2.770) ( 2.419) Eignfærðir vextir 191 95 Lántökukostnaður ( 80) ( 29) Vextir af leiguskuld ( 163) ( 95) Verðbætur ( 5.040) ( 2.788) Fjármagnsgjöld samtals ( 7.862) ( 5.236) Hrein fjármagnsgjöld ( 7.784) ( 5.092) Eignfærðir vextir eru vegna eigna sem eru í byggingu eða unnið er að verulegum endurbótum á og eru ekki í útleigu. Vaxtaútreikningur miðar við verðtryggða meðalvexti og tekur mið af meðalkjörum á fjármögnun félagsins á hverjum tíma. 8. Fjárfestingareignir Fjárfestingareignir samstæðunnar eru metnar á gangvirði á reikningsskiladegi í samræmi við alþjóðlegu reikningsskilastaðlana IAS 40 Fjárfestingareignir og IFRS 13 Mat á gangvirði, þróunareignir þar sem ekki er unnt að áætla gangvirði með áreiðanlegum hætti eru færðar á kostnaðarverði. Allar fjárfestingareignir falla undir stig 3 í flokkunarkerfi gangvirðsmats, sem felur í sér að matið byggir ekki á fáanlegum markaðsupplýsingum. Við mat á fjárfestingareignum er stuðst við núvirt framtíðarsjóðsflæði einstakra eigna. Sjóðstreymislíkanið byggir á frjálsu sjóðstreymi til samstæðunnar sem er núvirt með veginni ávöxtunarkröfu fjármagns sem gerð er til félagsins (WACC). Sjóðsflæðisáætlun í líkaninu er til 30 ára. Mat á fjárfestingareignum er unnið af starfsmönnum móðurfélagsins og er byggt á sömu matsaðferð og árið áður. Ávöxtunarkrafa eigin fjár er metin út frá CAPM (Capital Asset Pricing Model ) líkaninu þar sem byggt er á áhættulausum verðtryggðum vöxtum. Sem viðmiðun á áhættulausum vöxtum er byggt á 3 mánaða meðaltali ávöxtunarkröfu langs verðtryggðs ríkistryggðs skuldabréfs. Til viðbótar áhættulausum vöxtum kemur álag til að mæta þeirri áhætt u sem fylgir undirliggjandi rekstri félagsins á hverjum tíma. Vextir á lánsfjármagn eru metnir með hliðsjón af almennum vaxtakjörum sem bjóðast á markaði. Gert er ráð fyrir skuldsetningarhlutfallinu 65% til framtíðar. Innifalið í mati á fjárfestingareignum eru innréttingar og aðrir fylgihlutir sem nauðsynlegir eru til að tryggja tekjuflæði eignanna. Byggt er á forsendum við ákvörðun gangvirðis fjárfestingaeigna sem háðar eru mati stjórnenda og því kann raunverulegt söluverð að vera frábrugðið matinu.
Page 11
Skýringar Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 11 Fjárhæðir í milljónum króna Sundurliðun fjárfestingareigna greinist þannig: Fjárfestingar- eignir í eigu samstæðunnar Leigu- eignir Samtals Bókfært verð Staða 1.1.2026 222.951 5.578 228.528 Keyptar fjárfestingareignir 1.782 1.782 Fjárfesting á tímabilinu 4.418 4.418 Breyting vegna endurmats leiguskulda 171 171 Matsbreyting tímabilsins 7.714 ( 46) 7.669 Staða 30.6.2026 236.865 5.703 242.568 Sundurliðun fjárfestingareigna 2025: Bókfært verð Staða 1.1.2025 188.180 3.247 191.427 Keyptar fjárfestingareignir 21.064 2.471 23.535 Fjárfesting á árinu 6.005 6.005 Selt á árinu ( 26) ( 26) Breyting vegna endurmats leiguskulda 72 72 Matsbreyting ársins 7.728 ( 212) 7.516 Staða 31.12.2025 222.951 5.578 228.528 Sundurliðun fjárfestingareigna í eigu samstæðunnar 30.6.2026: Verslunar- húsnæði Skrifstofu- húsnæði Iðnaðar- og geymslu- húsnæði Hótel Heilsa, menntun og afþreying Þróunar- eignir Samtals Bókfært verð Staða 1.1. 67.383 83.647 16.408 26.643 25.717 3.152 222.951 Endurflokkun 240 81 ( 76) 0 0 ( 245) 0 Keypt á tímabilinu 46 1.737 0 0 0 0 1.782 Fjárfesting á tímabilinu 1.062 888 62 26 836 1.544 4.418 Matsbreyting tímabilsins 2.693 2.737 684 837 774 ( 10) 7.714 Staða 30.6. 71.424 89.090 17.078 27.505 27.327 4.441 236.865 Veginn fjármagnsk. án skattspörunar(WACC) 6,45% 6,37% 6,85% 6,77% 6,29% 6,47%
Page 12
Skýringar Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 12 Fjárhæðir í milljónum króna Sundurliðun fjárfestingareigna í eigu samstæðunnar 31.12.2025: Verslunar- húsnæði Skrifstofu- húsnæði Iðnaðar- og geymslu- húsnæði Hótel Heilsa, menntun og afþreying Þróunar- eignir Samtals Bókfært verð Staða 1.1. 60.797 65.459 14.211 19.496 24.779 3.437 188.180 Endurflokkun 1.513 0 0 0 0 ( 1.513) 0 Keypt á árinu 27 14.661 0 6.316 0 60 21.064 Fjárfesting á árinu 3.083 1.435 140 120 296 931 6.005 Selt á árinu ( 26) 0 0 0 0 0 ( 26) Matsbreyting ársins 1.989 2.092 2.057 711 642 237 7.728 Staða 31.12. 67.383 83.647 16.408 26.643 25.717 3.152 222.951 Veginn fjármagnsk. án skattspörunar(WACC) 6,44% 6,40% 6,83% 6,80% 6,28% 6,48% 2026 2025 Hækkun Lækkun Hækkun Lækkun Næmnisgreining gangvirðis: Hækkun (lækkun) leigutekna um 5% 14.262 ( 14.262) 12.633 ( 12.633) Lækkun (hækkun) á ávöxtunarkröfu um 0,5%-stig 18.813 ( 16.094) 16.679 ( 14.272) 9. Vaxtaberandi skuldir Vaxtaberandi skuldir greinast þannig: 30.6.2026 31.12.2025 Grænar skuldabréfaútgáfur á markaði 61.237 50.416 Græn bankalán 3.990 3.979 Grænar vaxtaberandi skuldir 65.227 54.395 Aðrar skuldabréfaútgáfur á markaði 46.435 45.481 Aðrar skuldir við lánastofnanir 35.521 35.733 Aðrar vaxtaberandi skuldir 81.956 81.215 Vaxtaberandi skuldir án affalla, yfirverðsreikningur 147.183 135.609 og eignfærðs lántökukostnaðar Afföll, yfirverð og eignfærður lántökukostnaður ( 1.244) ( 1.142) Næsta árs afborgun vaxtaberandi skulda ( 11.786) ( 4.578) Vaxtaberandi skuldir samtals, langtímahluti 134.153 129.890 Samstæðan hefur samið um skammtímalán og voru ónýttar lánsheimildir 4.600 m.kr. í lok tímabilsins.
Page 13
Skýringar Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 13 Fjárhæðir í milljónum króna Breytingar vaxtaberandi skulda á tímabilinu, án affalla, yfirverðs og eignfærðs lántökukostnaðar, greinast þannig: 2026 2025 1.1.-30.6. 1.1.-31.12. Vaxtaberandi skuldir 1. janúar 135.609 118.019 Ný lántaka 17.315 18.877 Yfirteknar skuldir við kaup á félögum 0 7.487 Afborganir og uppgreiðslur langtímalána ( 10.781) ( 12.916) Verðbætur 5.040 4.142 Vaxtaberandi skuldir í lok tímabils 147.183 135.609 10. Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum Klasi ehf. eignarhlutur 33,3% Klasi ehf., Silfursmári 12, 201 Kópavogur, er fasteignaþróunarfélag í jafnri eigu Heima hf., Haga hf. og KLS eignarhaldsfélags. Tómas Kristjánsson, stjórnarformaður Heima hf., er jafnframt annar aðaleigandi KLS eignarhaldsfélags ehf. og situr í stjórn Klasa ehf. Heildareignir Klasa ehf. þann 30.6.2026 voru 25.319 m.kr. og eiginfjárhlutfall 72%. Smárabyggð ehf. eignarhlutur 20,6% Smárabyggð ehf., Silfursmári 12, 201 Kópavogur, hélt á fasteignum og lóðum í Smárabyggð í Kópavogi en þeirri uppbyggingu er lokið. Heildareignir Smárabyggðar samkvæmt ársreikningi þann 31.12.2025 eru 299 m.kr. og eiginfjárhlutfall 53%. Eignarhlutir í hlutdeildarfélögum greinist þannig: 30.6.2026 31.12.2025 Bókfært verð 1.1. 6.093 5.558 Áhrif hlutdeildarfélaga 31 844 Arðgreiðsla frá hlutdeildarfélagi ( 31) ( 308) Bókfært verð 30.6. / 31.12. 6.093 6.093 11. Önnur mál Dómsmál Tvö dómsmál eru í gangi milli Heima atvinnuhúsnæðis ehf. og FF 11 ehf., meðeiganda að fasteigninni Miðhrauni 4 í Garðabæ. Málin snúa að uppgjöri sameigenda í kjölfar brunans 5. apríl 2018 og nema fjárkröfur FF11 ehf. samtals um 360 m.kr. í báðum málunum, m.a. vegna meintra tapaðra leigutekna, sameignarkostnaðar og skaðabótaskyldu. Heimar atvinnuhúsnæði ehf. hefur hafnað öllum kröfum og mótmælt öllum málsástæðum. Gagnkröfur félagsins nema 18,9 m.kr. Í öðru málinu hefur verið aflað matsgerða og er málið enn til meðferðar hjá héraðsdómi. Í hinu má linu, sem lýtur að meintu ofgreiddu tryggingarfé og sameiginlegum kostnaði, féll dómur í Landsrétti í máli nr. 607/2024 þar sem Heimar atvinnuhúsnæði ehf. og húsfélagið Miðhrauni 4 voru sýknuð af öllum kröfum FF11 ehf. FF11 ehf. óskaði í kjölfarið eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar, sem var samþykkt, og mun málið því fara fyrir Hæstarétt. Á þessum tímapunkti er ekki unnt að meta hvort framangreind dómsmál muni hafa fjárhagsleg áhrif á félagið.
Page 14
Samstæðureikningur Heima hf. 1. jan. - 30. jún. 2026 14 Fjárhæðir í milljónum króna Ársfjórðungayfirlit 2F 2026 1F 2026 4F 2025 3F 2025 Samtals Leigutekjur 4.207 4.118 4.219 4.017 16.560 Tekjur vegna rekstrar í fasteignum 213 208 209 207 836 Rekstrartekjur 4.419 4.325 4.428 4.223 17.396 Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna ( 902) ( 878) ( 841) ( 799) ( 3.421) Rekstur í fasteignum ( 316) ( 339) ( 371) ( 284) ( 1.310) Stjórnunarkostnaður ( 224) ( 255) ( 283) ( 177) ( 939) Rekstrarkostnaður ( 1.443) ( 1.472) ( 1.495) ( 1.260) ( 5.670) Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 2.977 2.853 2.934 2.963 11.726 Matsbreyting fjárfestingareigna 3.400 4.268 4.367 1.735 13.771 Afskrift eigna til eigin nota ( 18) ( 17) ( 20) ( 16) ( 72) Rekstrarhagnaður 6.359 7.105 7.280 4.681 25.425 Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld): Fjármunatekjur 70 8 70 27 176 Fjármagnsgjöld ( 3.534) ( 4.328) ( 1.536) ( 2.524) ( 11.922) Hrein fjármagnsgjöld ( 3.465) ( 4.320) ( 1.465) ( 2.497) ( 11.746) Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga ( 17) 48 828 3 862 Hagnaður fyrir tekjuskatt 2.877 2.833 6.642 2.188 14.539 Tekjuskattur ( 575) ( 567) ( 1.154) ( 437) ( 2.733) Hagnaður og heildarafkoma tímabilsins 2.301 2.266 5.487 1.750 11.805 Hagnaður á hlut Hagnaður á hlut 1,18 1,15 2,77 0,87 Þynntur hagnaður á hlut 1,18 1,15 2,77 0,87