Earnings release
Page 1
TILKYNNING – 3F 2025 Reykjavík 17. nóvember 2025 Kaldalón hf. | Köllunarklettsvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 419 1414 | kaldalon@kaldalon.is | kaldalon.is ÞRIÐJI ÁRSFJÓRÐUNGUR 2025 Rekstur Kaldalóns á þriðja ársfjórðungi var í samræmi við væntingar stjórnenda og afkomuspá félagsins. Rekstrartekjur félagsins hækka um 29% frá sama tímabili í fyrra. Þá hafa fjárfestingareignir félagsins aukist um 10% frá áramótum og eru eignir samstæðunnar nú tæpir 83 milljarðar króna. Félagið hefur gefið út 5 milljarða af skuldabréfum á markaði í tveimur flokkum frá hálfsársuppgjöri. Umtalsverður virðisauki er í endurfjármögnun félagsins, eða um 720 m.kr. á ársgrundvelli í vaxtasparnað miðað við ný leg kjör félagsins á markaði og bankaskuldir séu endurfjármagnaðar. Samstæðan fékk samþykkt kauptilboð í Austurhraun 7 sem háð er hefðbundnum fyrirvörum í fasteignaviðskiptum. Áætlað er að viðskiptum ljúki fyrir áramót. Matsbreyting fjárfestingareigna litast af hækkandi reiknuðum vegnum fjármagnskostnaði sem hefur hækkað um 0,23% frá áramótum og 0,12% á þriðja árs fjórðungi. Álag á eftirmarkaði verðtryggðrar skuldabréfaútgáfu ríkisins hefur hækkað umtalsvert á árinu. Hækkun verðlags (verðbólga) kemur til hækkunar á mati, en ekki að sama marki og lækkun vegna hækkun grunnvaxta. Reitun hækkaði nýlega UFS mat sitt á Kaldalóni í B2 . E inkunn hækkar milli ára úr 61 punkti í 71 punkt og heildarmat hækkar um einn flokk. Félagið lauk endurkaupum fyrir 350 m.kr. á öðrum ársf jórðung. Stjórn félagsins tók ákvörðun um nýja endurkaupaáætlun í október, enda er ávöxtun metin góð. Afkomuspá ársins er óbreytt. Jón Þór Gunnarsson forstjóri Áframhaldandi fjárfestingar í fasteignum. Félagið fékk samþykkt kauptilboð í Austurhraun 7, Garðabæ. Afhendingu á Krókhálsi 16, Skúlagötu 15 og Kletthálsi 1A lokið. Endurfjármögnun vaxtaberandi skulda gengur samkvæmt áætlun. Útgáfa markaðsskuldabréfa að andvirði 5 milljarða frá hálfsársuppgjöri. Rekstrartekjur hækka um 29% frá sama tímabili í fyrra og eru 4.131 m.kr. á fyrstu níu mánuðum ársins. Leigutekjur eru í samræmi við afkomuspá. Kaup á 2.500 fermetrum í Garðabæ Kaldalón hf. fékk samþykkt kauptilboð í fasteignina Austurhraun 7, Garðabæ. Fasteignin er mjög vel staðsett í einu öflugasta atvinnuhverfi höfuðborgarsvæðisins. Gert er ráð fyrir að viðskiptum ljúki fyrir áramót.
Page 2
TILKYNNING – 3F 2025 Reykjavík 17. nóvember 2025 Kaldalón hf. | Köllunarklettsvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 419 1414 | kaldalon@kaldalon.is | kaldalon.is REKSTUR Áframhaldandi vöxtur er í rekstrartekjum milli ára vegna fjárfestinga sem aðallega eru tilkomnar vegna fjárfestinga á fyrra ári. Rekstrartekjur fjórðungsins voru 1.493 m.kr. og rekstrargjöld námu 338 m.kr. Rekstrartekjur fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins nema 4.131 m.kr. og rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 3.211 m.kr. Rekstur félagsins er í samræmi við áætlanir stjórnenda og útgefna afkomuspá. Rekstrarhagnaðarhlutfall er 78% Hrein fjármagnsgjöld fjórðungsins námu 1.091 m.kr. og þar af eru vextir 562 m.kr. Frá áramótum h afa meða l vaxtakjör óverðtryggðra vaxta lækkað úr 10,1% í 9,22% og verðtryggðra vaxta úr 4,88% í 4,58%. Matsbreyting fjárfestingareigna lækkar frá árshlutauppgjöri. Kjör á eftirmarkaði verðtryggð ra skuldabréfa íslenska ríkisins heft ur farið hækkandi á árinu, en félagið leggur þau kjör til grunnvaxta í gangvirðismati félagsins. Á sama tíma var hækkunartaktur verðlags lægri og hefur það saman neikvæð áhrif á matsbreytingu fjárfestingareigna félagsins. Efnahagur Fjárfestingareignir félagsins nema 81.082 m.kr. og hækka um 7.638 m.kr. frá áramótum, aðallega vegna fjárfestinga í tekjuberandi fasteignum auk fjárfestinga í þróunarverkefnum sem verða tekjuberandi árið 2026. Fjárfesting í fasteignunum Krókháls 16, Klettháls 1A og Skúlagötu 15 lauk á þriðja ársfjórðungi með afhendingu á fasteignum. Handbært fé nam 1.050 m.kr. en auk þess hefur félagið aðgang að 1.250 m.kr. í óádregnum lánalínum. Hand - bært fé var nýtt á tímabilinu til fjárfestinga auk endurkaupa. Heildareignir námu 82.938 m.kr. (2024: 75.823 m.kr.) Vegnir meðalvextir (WACC) sem lagðir eru til grundvallar virðismats á gangvirði nam 6, 77% í lok ársfjórðungs og hækkar um 0, 23% frá áramótum. Áhrif hækkunar vegna meðalvaxta koma fram í lækkun á mati fjárfestingar - eigna. Á móti kemur hækkun á virðismati vegna verðlagsþróunar (verðbólgu) og virðisaukning vegna fjárfestingar í þróunareignum. Eigið fé félagsins hækkar og er 26. 833 m.kr. 30.9.2025 (31.12.2024: 25.938 m.kr.). Eigið fé og tekjuskatts- skuldbinding nema samtals 33.365 m.kr. ( 31.12.2024: 32.134 m.kr.) Þá hefur félagið staðið að endurkaupa- áætlunum. Í lok þriðja árs fjórðungs námu endurkaup félagsins 342 m.kr. og átti félagið 1,23% af útgefnum hlutum. Vaxtaberandi skuldir í lok ársfjórðungs námu 47.795 m.kr. (31.12.2024: 42.117 m.kr.). Aukin skuldsetning er vegna fjárfestinga í tekjuberandi fjárfestingareignum á árinu. Veðsetningarhlutfall var 59% í lok fyrsta ársfjórðungs (2024: 57%). Heildarskuldir nema 56.105 m.kr. (2024: 49.885). Félagið stækkaði skuldabréfaflokkinn KALD 150436 með sölu á skuldabréfum fyrir 2.500 m.kr. í október. Félagið gaf einnig út nýjan skuldabréfaflokk í september, KALD 150129 og seldi fyrir 2.500 m.kr. Jafnframt seldi félagið í september sex mánaða víxil í flokki KALD 26 0302 til endurfjármögnunar á fyrri víxli en félagið hefur gefið út víxla tvisvar á ári um nokkurt skeið. Afkomuspá Afkomuspá er óbreytt frá því í ágúst 2025. Áætlað er að rekstrartekjur 2025 verði á bilinu 5.500 m.kr.-5.670 m.kr. Rekstrarhagnaður ársins verði á bilinu 4.270-4.430 m.kr.
Page 3
TILKYNNING – 3F 2025 Reykjavík 17. nóvember 2025 Kaldalón hf. | Köllunarklettsvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 419 1414 | kaldalon@kaldalon.is | kaldalon.is LYKILTÖLUR (fjárhæðir í milljónum króna) 01.01.–30.9.2025 01.01.–30.9.2024 Rekstrartekjur 4.131 3.211 Tekjuvegið útleiguhlutfall afhentra eigna 97% 97% Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 3.211 2.518 Rekstrarhagnaðarhlutfall 78% 79% Matsbreyting á tímabilinu 1.553 2.956 Heildarhagnaður fyrir skatta 1.534 2.807 Arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli 8% 17% 30.9.2025 31.12.2024 Fjárfestingareignir1 81.082 73.444 Heildareignir 82.938 75.823 Vaxtaberandi skuldir 47.795 42.117 Handbært fé í lok tímabils 1.050 1.727 Eigið fé 26.833 25.938 Eigið fé og tekjuskattsskuldbinding 33.365 32.134 Veðsetningarhlutfall2 59% 57% Eiginfjárhlutfall 32% 34% ÚTLEIGA OG FJÁRFESTINGAR » Undirritaður hefur verið nýr leigusamningur um Þverholt 1, áætluð afhending er á 1F 2026. » Ríkiseignir fékk afhent nýtt rými í Skógarhlíð 18 á fjórðungnum fyrir geðheilsuteymi taugaþroskaraskana. » Borgahella 33 var afhent nýjum viðskiptavini í langtímaleigu á fjórðungnum. » Viðskipti og afhending á Skúlagötu 15, Kletthálsi 1A og Krókhálsi 16 lauk á fjórðungnum. » Nýr leigusamningur um veitingarými í Hæðasmára 6 var undirritaður á fjórðungnum. VIÐSKIPTAÞRÓUN » Félagið vinnur að st ækkun fasteignar að Suðurhrauni 10. Stækkunin er á skipulagsstigi. » Framkvæmdum að Brúartorgi 6, Borgarnesi miðar vel áfram og er áætlað að fasteign in verði afhend á 2F 2026. » Samþykkt voru á fjórðungnum byggingaráform á 3.500 m 2 iðnaðarhúsnæði að Fossaleyni 19. Framkvæmdir eru hafnar og er áætluð afhending á seinni árshelmingi 2026. 1 Fjárfestingareignir og eignir til eigin nota. 2 Vaxtaberandi skuldir í hlutfalli við fjárfestingareignir.
Page 4
TILKYNNING – 3F 2025 Reykjavík 17. nóvember 2025 Kaldalón hf. | Köllunarklettsvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 419 1414 | kaldalon@kaldalon.is | kaldalon.is Nánari upplýsingar veita Jón Þór Gunnarsson, forstjóri, jon.gunnarsson@kaldalon.is Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri, sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is Högni Hjálmtýr Kristjánsson, framkvæmdastjóri rekstrar, hogni.kristjansson@kaldalon.is Þessi tilkynning, ársuppgjör og hálfsársuppgjör eru aðgengileg á vefsíðu Kaldalóns: www.kaldalon.is/fjarfestar Fjárhagsdagatal Tilkynning 3F 17. nóvember 2025 Stjórnendauppgjör 2025 12. febrúar 2026 Ársuppgjör 2025 4. mars 2026 Aðalfundur 2026 26. mars 2026 Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.