Slides
Page 1
Afkomukynning annars ársfjórðungs 2026 Kynning fyrir fjárfesta 25 . ágúst 2026, kl. 8:30
Page 2
Kynningin fer fram á skrifstofu Reita og í streymi. Fyrir þau sem fylgjast með í streymi er hægt að senda spurningar á: fjarfestatengsl@ reitir.is Spurningum verður svarað í lokin. Fjárfestakynning 25 . ágúst, kl. 8:30 2
Page 3
3 Góð afkoma og sterk verkefnastaða 16% aukning rekstrarhagnaðar milli ára og tekjur vaxa umfram kostnað Leigusamningur um 5.500 fm . á Korputúni og 9.100 fm . hjúkrunarheimili á Akureyri Framkvæmt og byggt upp fyrir 5,4 ma . kr. á fyrstu sex mánuðum ársins 16,2% 5,4 ma. kr. 14.600 fm .
Page 4
4 Tekjur umfram áætlun á fyrri árshelmingi +12,7% leigutekjur Leigutekjur eru 9.884 m. kr. á fyrri árshelmingi og vaxa um 1.110 m. kr. milli ára, eða sem nemur 7,4% umfram verðlag. 96,7% nýtingarhlutfall +10,3% óbreytt eignasafn Tekjuaukning af óbreyttu eignasafni er 10,3% á fyrri árshelmingi. Uppfærðar horfur Gerum nú ráð fyrir að tekjur verði á bilinu 19.800 - 20.100 m. kr. og rekstrarhagnaður f. matsbreytingu verði á bilinu 13.200 - 13.500 m. kr. Heildarnýtingarhlutfall er 94,0% og nýtingarhlutfall eigna í rekstri er 96,7%. Lækkun nýtingar samsvarar um 100 m. kr. á ársgrundvelli. +1,7% rekstrarhagnaðarhlutfall Rekstrarhagnaðarhlutfall nam 63,1% og jókst um 1,7% þar sem aukning tekna án viðbótarkostnaðar hefur leiðandi áhrif.
Page 5
Framkvæmdum fyrir 5,4 ma . kr. á fyrri árshelmingi og verkefnastaðan heldur áfram að styrkjast með nýjum verkefnum. Góð dreifing er á verkefnum eftir tegund húsnæðis og verkefni í bígerð eru m.a. atvinnurými, íbúðir , hótel, og hjúkrunarheimili. Miðað við núverandi áætlun munu Reitir þróa og framkvæma fyrir um 10 ma . kr. á hvoru áranna 2026 og 2027. 5 Góður framgangur í uppbyggingu
Page 6
Hjúkrunarheimili á Akureyri Tilboð Reita í uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri var valið hagstæðast í nýlegu útboði. Hjúkrunarheimilið sem mun rísa við Þursaholt 6 verður um 9.100 fermetrar að stærð og mun rúma 140 íbúa. 6
Page 7
Nýr leigusamningur í höfn á Korputúni Reitir og Drangar undirrituðu leigusamning um 5.500 fm . verslunarrými á Korputúni í júlí. Nettó, Lyfjaval, Heimkaup, Brauð & Co., Kjötkompaní, matsölustaður og tvær nýjar verslanir opna í nýjum verslunarkjarna. Áætluð afhending verslana Dranga er sumarið 2027 og f ramkvæmdir og þróun næstu reita á Korputúni halda áfram.
Page 8
8 Grunn - og leikskóli rís í lífsgæðakjarna við Nauthólsveg Reitir og Hjallastefnan undirrituðu viljayfirlýsingu um þróun og uppbyggingu á nýjum leik - og grunnskóla fyrir 400 börn sem rísa mun í lífsgæðakjarnanum við Nauthólsveg . Með samstarfinu eru nú tveir lykilsamningar í höfn fyrir lífsgæðakjarnann, annars vegar við Hjallastefnuna og hinsvegar leigusamningur við Ríkiseignir um hjúkrunarheimili fyrir 87 íbúa. Lífsgæðakjarninn er fyrstur sinnar tegundar á Íslandi og verkefnið er til marks um sérstöðu Reita sem leiðandi þekkingar - og þróunarfélag.
Page 9
Afkoma fyrri árshelmings 2026
Page 10
Rekstrarhagnaður eykst um 16,2% milli ára Lykiltölur rekstrar 2026 1H 2025 1H ∆ ∆% Leigutekjur 9.884 8.774 1.110 12,7% Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna - 2.717 - 2.564 - 153 6,0% Stjórnunarkostnaður - 574 - 536 - 38 7,1% Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 6.593 5.674 919 16,2% Matsbreyting fjárfestingareigna 3.895 3.604 291 8,1% Hrein fjármagnsgjöld 8.528 5.651 2.877 50,9% Hagnaður og heildarhagnaður 1.567 2.771 - 1.204 - 43,5% Lykilhlutföll Virkt nýtingarhlutfall 96,7% 97,9% - 1,2% Heildarnýtingarhlutfall 94,0 % 94,2% - 0,2% Rekstrarkostnaðarhlutfall 26,0% 27,8% - 1,8% Stjórnunarkostnaðarhlutfall 5,5% 5,8% - 0,3% Rekstrarhagnaðarhlutfall 63,1% 61,4% +1,7% 10 Tekjuvöxtur um 12,7% og 7,4% að raunvirði er afar góð niðurstaða á fyrstu sex mánuðum ársins. Tekjuvöxturinn hefur að stærstum hluta komið innan úr eignasafninu með jákvæðum áhrifum á rekstrarhagnað sem vex um 16,2%. Matsbreyting fyrri árshelmings nemur 3.895 m. kr. eða um 1,7%. Verðlagshækkun og hækkun ávöxtunarkröfu togast á. Nýtingarhlutföll lækka lítillega en rekstrarhagnaðarhlutfall er 1,7% hærra en í fyrra.
Page 11
Tekjur vaxa um 5,4% samanborið við fyrsta ársfjórðung og eru komnar yfir fimm milljarða í fyrsta sinn. Sambærilegur vöxtur í kostnaðarliðum og vex rekstarhagnaður því um 5,3% milli ársfjórðunga. Matsbreyting fjórðungsins er 1.053 m . kr. Hlutföll í rekstri flest sambærileg frá fyrsta fjórðungi. 11 Tekjur vaxa um 5,4% milli fjórðunga Lykiltölur rekstrar 2026 2F 2026 1F ∆ ∆% Leigutekjur 5.072 4.811 261 5,4% Rekstrarkostnaður fjárfestingareigna - 1.393 - 1.323 70 5,3% Stjórnunarkostnaður - 298 - 276 22 8,0% Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu 3.381 3.212 169 5,3% Matsbreyting fjárfestingareigna 1.053 2.841 - 1.788 - 62,9% Hrein fjármagnsgjöld - 3.591 - 4.937 - 1.346 - 27,3% Hagnaður og heildarhagnaður 709 858 - 149 - 17,4% Lykilhlutföll Virkt nýtingarhlutfall 96,7% 96,9% - 0,2% Heildarnýtingarhlutfall 93,8 % 94,2% - 0,4% Rekstrarkostnaðarhlutfall 26,0% 25,9% 0,1% Stjórnunarkostnaðarhlutfall 5,5% 5,4% 0,1% Rekstrarhagnaðarhlutfall 63,0% 62,9% 0,1%
Page 12
Traustur efnahagur vex 30.6.2026 31.12.2025 br. árs Eignir Fjárfestingareignir 262.452 252.194 10.258 Eignir til eigin nota 597 554 43 Fastafjármunir 263.049 252.748 10.301 Viðskipta - og aðrar sk.t.kröfur 3.139 2.146 993 Handbært og bundið fé 2.659 1.167 1.492 Veltufjármunir 5.798 3.313 2.485 Eignir samtals 268.847 256.061 12.786 Eigið fé 77.238 79.099 - 1.861 Skuldir Vaxtaberandi skuldir 134.487 132.096 2.391 Tekjuskattsskuldbinding 24.462 24.070 392 Leiguskuldbinding 7.132 6.896 236 Langtímaskuldir 166.081 163.062 3.019 Vaxtaberandi skuldir 21.808 11.456 10.352 Viðskipta - og aðrar sk.t.skuldir 3.720 2.444 1.276 Skammtímaskuldir 25.528 13.900 11.628 Skuldir samtals 191.609 176.962 14.647 Eigið fé og skuldir samtals 268.847 256.061 12.786 12 Heildareignir vaxa um 12,8 ma . kr. frá áramótum og er stærstur hluti vaxtarins framkvæmdir og matsbreyting eigna. Staða í handbæru fé var mjög góð í lok árshlutans. Vaxtaberandi skuldir aukast um 12,8 ma . kr. bæði vegna nýrrar fjármögnunar en einnig vegna verðbótahækkunar á fyrirliggjandi lánum. Lánaþekja í lok fjórðungsins var 61,2%, og eykst um 2,3% yfir fjórðunginn. Eiginfjárhlutfall var á sama tíma 28,7% og lækkar um 0,7%. Meðalkjör verðtryggðra skulda í lok annars ársfjórðungs voru 3,54% og hækka um 1 punkt frá fyrsta fjórðungi. Nýjasta skuldabréfaútgáfa var óverðtryggt bréf með breytilegum kjörum.
Page 13
13 Horfur fyrir árið hækkaðar 19.800 - 20.100 m. kr. 13.200 - 13.500 m. kr. leigutekjur 2026 rekstrarhagnaður f. matsbreytingu 2026 Horfur ársins hafa verið uppfærðar og stjórnendur gera nú ráð fyrir því að leigutekjur verði á bilinu 19.800 - 20.100 m. kr. og að rekstrarhagnaður ársins nemi 13.200 - 13.500 m. kr. Að baki hækkun á horfum ársins eru bæði verðlagshækkun sem hefur verið kröftugari en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir. Rauntekjuvöxtur hefur sömuleiðis verið góður.
Page 14
Spurningar og svör
Page 15
Takk fyrir
Page 16
Fyrirvari Reitir vekja athygli á því að í efni kynningar þessarar er að finna staðhæfingar sem byggja á mati og áætlunum stjórnenda félagsins en ekki á staðreyndum sem hægt er að sannreyna við birtingu kynningarinnar. Athygli fjárfesta er vakin á því að margir þættir geta haft áhrif á það rekstrarumhverfi sem félagið starfar í og kann afkoma félagsins að verða með öðrum hætti en forsendur gera ráð fyrir í kynningu þessari. Kynningin verður ekki endurskoðuð eftir birtingu hvað þetta varðar. Þær staðhæfingar sem finna má í þessari kynningu gilda eingöngu á þeim tímapunkti þegar kynningin er fyrst birt og takmarkast gildi þeirra við það sem segir í fyrirvara þessum. 16